Varð bara að koma með þennan inn:D

Afhverju eru ljóskubrandarar svona stuttir? Svo að karlmenn skilji þá !

En svona af því að ég er að þessu þá finnst mér þessir líka alveg frábærir.

Bakaðar baunir


Dag einn hitti ég yndislegan herramann og við urðum ástfangin.

Þegar það varð ljóst að við myndum giftast ákvað ég að fórna því sem ég
hafði mikið dálæti á. Ég hætti að borða bakaðar baunir.

Einhverjum mánuðum seinna, á afmælisdaginn minn, og ég var að fara heim
frá
vinnu, bilaði bíllinn minn.

Þar sem ég bjó út í sveit hringdi ég í manninn minn og sagði honum að
ég
kæmi seint þar sem ég þyrfti að ganga heim.


Á leið minni heim gekk ég fram hjá litlu veitingahúsi og lyktin af
bökuðum
baunum var meiri en ég gat staðist.

Þar sem ég átti eftir að ganga nokkra kílómetra áður en ég næði heim
reiknaði ég það út að ég myndi ganga af mér þá kvilla sem fylgdu því að
borða bakaðar baunir áður en ég kæmi heim. Svo ég stoppaði á
veitingahúsinu
og áður en ég vissi af hafði ég klárað þrjá stóra skammta af bökuðum
baunum.

Alla leiðina heim fullvissaði ég mig um að ég hefði losað mig við allt
gas
sem fylgir slíkri græðgi.

Þegar heim var komið tók eiginmaður minn spenntur á móti mér og sagði:
"Ástin mín! Ég ætla að koma þér á óvart við kvöldverðarborðið."



Hann batt síðan slæðu fyrir augun á mér og leiddi mig að stól við
borðið.



Ég fékk mér sæti og rétt í því sem hann ætlar að leysa frá augunum á
mér,
hringdi síminn.

Hann lét mig lofa því að ég myndi ekki kíkja fyrr en hann hefði
afgreitt
símtalið og svo fór hann til þess að svara í símann.

Bökuðu baunirnar sem ég hafði innbyrt voru ennþá að hafa áhrif á mig og
þrýstingurinn var að verða óbærilegur. Svo að á meðan eiginmaðurinn
var
í
öðru herbergi notaði ég tækifærið, lét allan þunga minn hvíla á annarri
rasskinninni og hleypti einu skoti út.

Það var ekki eingöngu hátt heldur lyktaði það eins og gúanóverksmiðja.



Ég tók servíettuna úr kjöltu mér og notaði hana sem viftu.

Svo lyfti ég mér upp á hina kinnina og skaut þremur í viðbót. Lyktin
var
verri en af soðnu káli.

Þessu hélt ég áfram í fimm mínútur í viðbót á meðan ég hlustaði
gaumgæfilega
á samræðurnar sem fram fóru í hinu herberginu.

Ánægjan var ólýsanleg eða þar til kveðjuorðin í hinu herberginu bundu
enda
á
þetta frelsi mitt. Ég loftaði í flýti í kringum mig með servíettunni,
lagði
hana síðan í kjöltu mér og kom höndunum fyrir ofan á henni og hugsaði
um
hversu vel mér liði og hversu ánægð ég var með mig.

Andlit mitt hlýtur að hafa sýnt mynd sakleysis þegar eiginmaður minn
kom
aftur og baðst afsökunnar á því að hafa verið svona lengi í símanum.

Hann spurði mig hvort ég hefði nokkuð svindlað og kíkt en ég
fullvissaði
hann um að það hefði ég ekki gert.

Þegar hér var komið sögu tók hann slæðuna frá augum mér og tólf
kvöldverðargestir sem sátu í kringum borðið hrópuðu:



"Til hamingju með afmælið!"

Það leið yfir mig!!!!!!!!!!!!!!!!!!


Ef vinnudagurinn hefur verið hræðilegur prófaðu þá þetta:

Farðu í apótek á leiðinni heim og kauptu Johnson & Johnson hitamæli, enga
aðra tegund. Þegar þú ert komin/n heim lokaðu þá að þér, dragðu
gluggatjöldin fyrir og taktu símann úr sambandi. Farðu í mjög þægileg föt,
t.d. íþróttagalla, og leggstu upp í rúmið þitt. Opnaðu pakkann og settu
mælinn varlega á náttborðið. Taktu bæklinginn sem fylgir og lestu hann. Þú
munt sjá að neðst stendur með litlum stöfum : Allir endaþarmsmælar frá
Johnson & Johnson fyrirtækinu eru persónulega prófaðir. Lokaðu nú augunum
og segðu upphátt : " Eg gleðst af öllu hjarta yfir því að ég vinn ekki á
prófanadeildinni hjá Johnson & Johnson fyrirtækinu." Endurtaktu þetta
fjórum sinnum. Hafðu það svo gott og mundu að það er alltaf einhver sem er
í verra starfi en þú.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband